Flýtilyklar
NaNa er Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir
Guðbjörg Jóna eða listakonan NaNa eins og hún kallar sig hefur stundað handavinnu alla sína tíð. Þeir sem þekkja hana muna hana varla öðruvísi en með prjóna á lofti eða að föndra við ýmislegt annað. Nú hins vegar hefur vinna með leður, skinn og roð átt hug hennar allan og útbýr hún veski, armbönd og belti úr þessu hráefni svo nokkuð sé nefnt.
Nýjustu fréttir
-
NaNa á Akranesi
Almennt - miðvikudagur 16.maí.12 18:17 - Lestrar 6 - Athugasemdir (0)NaNa verður á Akranesi í Safnahúsinu á morgurn uppstigningardag 17. maí 2012. Opið frá kl. 14:00 til kl. 17:00. Passlegur "sunnudagsbíltúr" hlakka til að hitta ykkur.
-
Nana er í Mjódd alla föstudaga fram í miðjan maí.
Almennt - mánudagur 16.apr.12 08:12 - Lestrar 38 - Athugasemdir (0)Nana er í Mjódd alla föstudaga fram í miðjan maí. Nana býr í sumarbústaðinum sínum Ásbyrgi við Meðalfellsvatn í Kjósinni. Þar er hún með Gallerý NaNa og saumar af krafti. Hún tekur á móti gestum allt að 15 persónum. Velkomin á staðinn. Hringið í síma 847-8980 ef þið eruð í vandræmum að finna staðinn.
-
Gallerý NaNa opnar á laugardag
Almennt - föstudagur 6.apr.12 10:48 - Lestrar 55 - Athugasemdir (0)Nú er NaNa flutt í sveitina. Opnunarhátíð verður á laugardaginn 7. apríl. Gallerýið er við sumarbústað NöNu Ásbyrgi við Meðalfellsvattn í Kjós. Mikið er um dýrðir í Hvalfirði um páskana og er hægt að skoða það t.d. á kjos.is Nú er bara að drífa sig á staðinn og njóta.
-
NaNa byrjar í Mjódd
Almennt - mánudagur 27.feb.12 15:19 - Lestrar 141 - Athugasemdir (5)Nana byrjar í Mjóddinni næstu föstudaga 2. mars, 9. mars, 23. mars og síðan alla föstudaga fram í miðjan maí. Nú er um að gera að koma í Mjóddina og skoða nýju vörurnar. Myndin sem fylgir með er taska úr kálfsleðri skreytt með krókódíl.




